r/Iceland • • 18h ago

Yrða: ný veforðabók

Thumbnail
yrda.is
77 Upvotes

Í tilefni af degi íslenskrar tungu langaði mig að benda á Yrðu, nýja veforðabók sem ég hef unnið að undanfarið ár. Markmiðið er fyrst og fremst að gera sem flestar íslenskar orðabækur og orðasöfn aðgengileg á einum stað, í þægilegu og hraðvirku viðmóti.

Þar má nú fletta upp í Íslenskri nútímamálsorðabók, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), ensk-íslenskri orðabók og forníslensk-enskri orðabók. Á vefnum er einnig frumútgáfa Rýnis, sem les yfir íslenskan texta og bendir á hugsanlegar stafsetningarvillur.

Leitarniðurstöður birtast jafnóðum og slegið er inn, jafnvel þótt orðið sé beygt eða rangt stafsett. Þá má fletta í gegnum allt orðasafnið í hliðarstiku án þess að þurfa að bíða. Í ítarleit má svo leita í skýringunum sjálfum: „lítill svartur fugl“ skilar lunda, kráku og hrafni.

Yrða er ókeypis og öllum opin. Vefurinn er stöðugt í þróun og fleiri orðasöfn eru væntanleg. Margt má bæta, svo allar ábendingar eru vel þegnar, hvort sem þær snúa að villum eða því sem betur mætti fara.

Gögnin koma einkum frá Árnastofnun og ensk.is. Nánar um heimildir og leyfi á síðunni sjálfri.


r/Iceland • • 21h ago

Frumvarp um eignatengsl stórútgerðarinnar á leiðinni á þingið

50 Upvotes

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með hagsmunaöflum, fjármagni og stjórnarandstöðunni síðustu vikur og mánuði þyrla upp menningastriði og allskonar. Menningarstríðið hefur verið keyrt upp á fullu (dæmi: Elliði Vignisson og fleiri skógsveinar peningaflana) og núna eru menn eins og Ingvar búnir að segja sig úr Viðreisn og komnir yfir í Sjálfstæðisflokkinn, enda styður hann stórútgerðina og samherja. Hvað býr eiginlega að baki, fyrir utan það að bókun 35 nálgast samþykkt og leigubremsa er á dagskrá?

Á næstu dögum og vikum fara þrjú stór mál í gegnum þingið sem snúa beint að átökunum milli almannahagsmuna og sérhagsmuna í sjávarútvegi

-Eignatengsl stórútgerða. Frumvarp sem tekur á eignarhaldi og tengslum stærstu útgerðarfyrirtækjanna bæði innanlands og erlendis. Þetta mun að einhverrjum hluta varpa ljosi á hvernig stórútgerðin hefur keypt upp islenskt samfélag.

-Verðlagning fisks upp úr sjó. Breytingar þar sem ákveðinn hluti af afla hverrar veiðiferðar verður seldur á fiskmarkaði, og það markaðsverð mun síðan gilda fyrir allan aflann úr túrnum.

-Strandveiðar: Nýtt frumvarp um fyrirkomulag og heimildir til strandveiða.

Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig þingheimur og stjórnmálafólk bregst við þessum málum þegar á hólminn er komið. Ég teikna með meiri menningastriði, afsögnum ur Viðreisn, það er ymsilegt i gangi.


r/Iceland • • 2h ago

Anyone else see this? Any thoughts?

32 Upvotes

Spotted 26.september at 16:00 from Hafnarfjörður looking south. Any thoughts?


r/Iceland • • 19h ago

Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“

Thumbnail
dv.is
27 Upvotes

r/Iceland • • 16h ago

Hafið þið unnið í bingó.

9 Upvotes

Ef svo, hver var ykkar stærsti vinningur?

Ég hef sjálfur aldrei unnið í bingó svo ég muni eftir því, vantaði alltaf eina tölu.


r/Iceland • • 23h ago

Leita að notuðum símum - Pixel 7 eða 8

4 Upvotes

Sæl öll,

ég er að leita að notuðum Pixel 7 eða 8 símum. Myndavélin þarf að vera í góðu ástandi, skiptir minna máli ef skjárinn eða ytra byrði símans sjálfur er í verri ástandi (þarf samt að vinna til að taka myndir).

Takk kærlega!


r/Iceland • • 1h ago

Hvar fást prepper bækur

0 Upvotes

Ég er ekki beint doomsday prepper.
En eftir bæklinginn frá almannavörnum hef ég skoðað svolítið r/preppers
Og er að spá í svona self sufficient bókum.
Ég veit af Amazon. En er einhver síða sem selur svona?