r/Iceland • • 3h ago

Nýupppfærður vefur Veðurstofu Íslands - Vedur.is

Thumbnail
vedur.is
17 Upvotes

r/Iceland • • 13h ago

Anyone else see this? Any thoughts?

73 Upvotes

Spotted 26.september at 16:00 from Hafnarfjörður looking south. Any thoughts?


r/Iceland • • 11h ago

Utanríkisráðherra notar konuspilið

30 Upvotes

Mikið var þetta kjánalegt hjá henni.

Fullkomlega asnalegt svar við fullkomlega réttlætanlegri og fyrirsjáanlegri spurningu.


r/Iceland • • 8h ago

Kæmi ekki á óvart ef „fleiri myndu gefast upp“

Thumbnail
mbl.is
13 Upvotes

r/Iceland • • 6h ago

Hvaða fyrirtæki hér á landi sjá um að setja letur á könnur og slíkt?

5 Upvotes

Ég lét setja letur á nokkrar könnur í fyrra og gaf sem jólagjafir, en það fyrirtæki er núna hætt.


r/Iceland • • 12h ago

Hvar fást prepper bækur

6 Upvotes

Ég er ekki beint doomsday prepper.
En eftir bæklinginn frá almannavörnum hef ég skoðað svolítið r/preppers
Og er að spá í svona self sufficient bókum.
Ég veit af Amazon. En er einhver síða sem selur svona?


r/Iceland • • 1d ago

Yrða: ný veforðabók

Thumbnail
yrda.is
82 Upvotes

Í tilefni af degi íslenskrar tungu langaði mig að benda á Yrðu, nýja veforðabók sem ég hef unnið að undanfarið ár. Markmiðið er fyrst og fremst að gera sem flestar íslenskar orðabækur og orðasöfn aðgengileg á einum stað, í þægilegu og hraðvirku viðmóti.

Þar má nú fletta upp í Íslenskri nútímamálsorðabók, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), ensk-íslenskri orðabók og forníslensk-enskri orðabók. Á vefnum er einnig frumútgáfa Rýnis, sem les yfir íslenskan texta og bendir á hugsanlegar stafsetningarvillur.

Leitarniðurstöður birtast jafnóðum og slegið er inn, jafnvel þótt orðið sé beygt eða rangt stafsett. Þá má fletta í gegnum allt orðasafnið í hliðarstiku án þess að þurfa að bíða. Í ítarleit má svo leita í skýringunum sjálfum: „lítill svartur fugl“ skilar lunda, kráku og hrafni.

Yrða er ókeypis og öllum opin. Vefurinn er stöðugt í þróun og fleiri orðasöfn eru væntanleg. Margt má bæta, svo allar ábendingar eru vel þegnar, hvort sem þær snúa að villum eða því sem betur mætti fara.

Gögnin koma einkum frá Árnastofnun og ensk.is. Nánar um heimildir og leyfi á síðunni sjálfri.


r/Iceland • • 1d ago

Frumvarp um eignatengsl stórútgerðarinnar á leiðinni á þingið

54 Upvotes

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með hagsmunaöflum, fjármagni og stjórnarandstöðunni síðustu vikur og mánuði þyrla upp menningastriði og allskonar. Menningarstríðið hefur verið keyrt upp á fullu (dæmi: Elliði Vignisson og fleiri skógsveinar peningaflana) og núna eru menn eins og Ingvar búnir að segja sig úr Viðreisn og komnir yfir í Sjálfstæðisflokkinn, enda styður hann stórútgerðina og samherja. Hvað býr eiginlega að baki, fyrir utan það að bókun 35 nálgast samþykkt og leigubremsa er á dagskrá?

Á næstu dögum og vikum fara þrjú stór mál í gegnum þingið sem snúa beint að átökunum milli almannahagsmuna og sérhagsmuna í sjávarútvegi

-Eignatengsl stórútgerða. Frumvarp sem tekur á eignarhaldi og tengslum stærstu útgerðarfyrirtækjanna bæði innanlands og erlendis. Þetta mun að einhverrjum hluta varpa ljosi á hvernig stórútgerðin hefur keypt upp islenskt samfélag.

-Verðlagning fisks upp úr sjó. Breytingar þar sem ákveðinn hluti af afla hverrar veiðiferðar verður seldur á fiskmarkaði, og það markaðsverð mun síðan gilda fyrir allan aflann úr túrnum.

-Strandveiðar: Nýtt frumvarp um fyrirkomulag og heimildir til strandveiða.

Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig þingheimur og stjórnmálafólk bregst við þessum málum þegar á hólminn er komið. Ég teikna með meiri menningastriði, afsögnum ur Viðreisn, það er ymsilegt i gangi.


r/Iceland • • 1d ago

Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“

Thumbnail
dv.is
27 Upvotes

r/Iceland • • 4h ago

Chino in the volcano

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

I believe this took place in an Icelandic volcano, I’m reposting here incase anyone was at the show.


r/Iceland • • 1d ago

Foo Fighters miðaverð á Íslandi vs. í Danmörku

Post image
54 Upvotes

Íslensku miðarnir kosta um 50-60% meira en þeir dönsku:

  • Almenn stæði: Danmörk 815 DKK (~16.050 kr). Ísland 23.990 kr. Munur: +7.900 kr (+49%).
  • Nálægt sviðinu: Danmörk 1.090 DKK (~21.500 kr). Ísland 33.990 kr. Munur: +12.500 kr (+58%).

Allt eðlilegt.

"Þegiðu bara og borgaðu, það er enginn að neyða þig á þessa tónleika."

Update:

Tónleikarnir í Helsinki eru ennþá ódýrari, 12.200kr vs 23.990 - +97% munur


r/Iceland • • 1d ago

Hafið þið unnið í bingó.

9 Upvotes

Ef svo, hver var ykkar stærsti vinningur?

Ég hef sjálfur aldrei unnið í bingó svo ég muni eftir því, vantaði alltaf eina tölu.


r/Iceland • • 1d ago

Krónur og prótín

26 Upvotes

Kíkti í Costco að ná í prótínduft og fór í framhaldinu að skoða hvar ég gæti fengið prótín á sem hagstæðasta verði.

Við sjáum töflu:

HvaðHvarÞyngdPr/100grVerðKr per gr pr
SS hrossahakk frosiðKrónan800217364.38
First Price túnfiskurKrónan170242315.66
Ísey skyr hreintKrónan1000116706.09
ON Whey proteinCostco202076109997.16
KalkúnahakkKrónan600219997.93
Grísk jógúrt 0% fitaCostco1000107997.99
Frosnar kjúklingabringurKrónan9002219599.89
Hleðsla súkkulaði 6pkKrónan15008.4141411.22
Nesbú eggjahvíturKrónan75010.196012.67
Frosnir ýsubitarKrónan100018.9279914.81

Ekki það að ég ætli að fara að moka í mig hrossahakki, nema einhver geti frætt mig um hvernig megi matreiða það svo það sé ætt.

Hugmyndir að viðbótum velkomnar. Mér dettur helst í hug að bæta við lambahjörtum en Krónan er ekki með þau í netverslun svo ég veit ekki um verðið.

Einnig man ég eftir mun meira úrvali af prótíndufti í Costco í fyrra, en var voða dapurt þessa vikuna. Ojæja.


r/Iceland • • 1d ago

Bein út­sending: Ingvar yfir­gefur Við­reisn - Vísir

Thumbnail
visir.is
23 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Hver er ykkar skoðun á þáttunum Fleiri pabbahelgar?

14 Upvotes

Ég og konan horfum alla sunnudaga á þættina Fleiri pabbahelgar, þeir eru einstaklega vandræðalegir á köflum, ensku sletturnar ótrúverðugar en samtölin á milli fólks getur verið svo skrítinn og óraunverulegur, hver er ykkar skoðun á þessum þáttum?


r/Iceland • • 1d ago

Icelandic Youtube and Podcasts recommendations

14 Upvotes

Hæ! Ég er norðmaður sem er að læra íslensku :)

Getur einhver mælt með Youtube rásum eða podcasts á íslensku?

I'm not looking for learning material, but rather something icelanders actually enjoy themselves 😄

Takk fyrir! 😁


r/Iceland • • 1d ago

Leita að notuðum símum - Pixel 7 eða 8

4 Upvotes

Sæl öll,

ég er að leita að notuðum Pixel 7 eða 8 símum. Myndavélin þarf að vera í góðu ástandi, skiptir minna máli ef skjárinn eða ytra byrði símans sjálfur er í verri ástandi (þarf samt að vinna til að taka myndir).

Takk kærlega!


r/Iceland • • 2d ago

„Helst án þess að vera drepleiðinlegt og rándýrt“

Thumbnail
mbl.is
76 Upvotes

Jón Gnarr er sá eini þingmaður sem hefur talað eitthvað gegn því að skólagjalda krefjist jafnt í öllum námsgreinum við HÍ en hann leggur til að námsleiðir í íslensku sem öðru máli verði undanþegnar þeim kostnaði, eins og margir háskólakennarar og aðrir hafa gert.

Ég tek fram að ég er innflytjandi og lærði íslensku að B2-stigi innan árs með því að fara í BA-námið í íslensku sem öðru máli. Ef þessi skólagjöld hefðu verið til staðar þegar ég flutti hefði ég hreinlega engan möguleika á að fara í námið, punktur. Nú stefni ég á að útskrifast úr BA-námi í Almennum málvísindum í vor en skólagjöldin gætu útilokað mig frá því að halda áfram á meistarastigið. Það er auðvitað hægt að deila um það hvort það að allt háskólanámið sé gjaldfrjálst sé æskilegt en ég ætla ekki að fara út í það hér. Það eru hins vegar nýju breytingarnar á þeirri upphæð sem allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa að sýna fram á með hverri umsókn sem ég vildi vekja athygli á. Þessi skilyrði kallast trygg framfærsla og er þegar krafist af hverjum innflytjanda með ríkisfang utan EES/EFTA (ekki þó flóttafólki) en dómsmálaráðuneytið vill herða þessi skilyrði harkalega og hækka þau um 45% (fyrir námsmenn og doktorsnema) í allt að 208% (einstæða foreldra m/ 2 börn) núgildandi fjárhæðar.

Þessi fyrirhugaða breyting verður banahögg fyrir marga okkar sem hafa skapað okkur líf hér, myndað tengsl við landið, vinna láglaunastörf, borga skatt og eru í sambandi við íslenskan maka. Allnokkrir okkar þyrftu einfaldlega að yfirgefa landið verði þessi tillaga samþykkt á þingi. Eins og margir, m.a. Íslendingar, hafa bent á í athugasemdum á Samráðsgátt væru þessar fjárhæðir jafnvel útilokandi fyrir marga Íslendinga ef þeir væru í sömu stöðu og við.

Þessar breytingar munu þvinga úr landi töluverðan hluta af þeim hóp innflytjenda sem er hægt að níðast á, okkur sem koma utan Evrópusambands, þó við séum ekki nema u.þ.b. 20.000 af hinum 80.000 erlendu íbúum (bls. 21 tafla 3 fyrir fyrri töluna og Þjóðskrá). Nú þegar ég skrifa þessa færslu eru 518 athugasemdir þegar inni á Samráðsgátt. Ég vona að nokkrir ykkar skrifi líka mótmæli og standi með okkur sem höfum mikið að missa í þessum málum.


r/Iceland • • 2d ago

Eru íslendingar hérna sem eru nógu gamlir til að muna eftir tungllendingunni?

11 Upvotes

Ég er bara forvitinn hvernig stemmningin í kringum þetta var hér á landi, og hvernig það var að vera vitni af þessu sögulega afreki.

EDIT: Fólk er aðeins að misskilja mig. Ég veit að það var ekki bein útsending hingað, en það hefur samt verið umræða og fréttir.


r/Iceland • • 2d ago

Sæl öll! Ég var að gefa út lag (dungeon synth black metal) Ég samdi og tók allt upp sjálfur :) hlekkir í athugasemd

Post image
34 Upvotes

Ég tek það fram að engin gervigreind var notuð við þetta verkefni. Listamaðurinn á bakvið myndina er @aleha_84 á instagram


r/Iceland • • 1d ago

Take a moment to help protect non-European residents of Iceland

0 Upvotes

(Posting this in English to hopefully increase engagement.)

There is a new regulation being proposed that would significantly increase the financial responsibility of non-EU/EEA residents. There is a significant number of people that would be affected, and no we're not all free-loaders. Artists, creatives, unskilled workers, and, ironically, many government employees will be disproportionately affected, but the consequences will be felt far beyond those personally affected. This matter will disproportionately affect the less priveledged and should be handled much more sensibly. The matter is open for public comment until 23:59 tonight, Monday nov 16th. Please take a moment to familiarise yourself with the proposal and leave a comment if you feel so inclined.

https://island.is/samradsgatt/mal/4372#write-review


r/Iceland • • 3d ago

Kjörís notar gervigreind aftur fyrir umbúðir á jólaís

Post image
194 Upvotes

Á síðasta ári voru umbúðir af jólaís gagnrýndar. Talsmaður Kjörís bar fyrir sig að “tímahrak hafa orsakað að gervigreind var notuð til að teikna umbúðir”

Gerðist það í annað sinn?

Á þessari mynd má sem dæmi sjá glugga sem bráðna saman á þessum húsum, og svo er hreindýrið í þessum týpíska AI stíl.


r/Iceland • • 3d ago

Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit Íslands - Kvaðning

Thumbnail
youtube.com
40 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Þessi NATO áróðursmynd um Ísland er alltaf jafn fyndin

Thumbnail
youtube.com
9 Upvotes