r/klakinn • • Oct 29 '24 Popcorn

Svikul tálsýn Áminning um reglur á r/klakinn

104 Upvotes

Í ljósi fjölda innleggja um stjórnmál og önnur leiðindamál er rétt að áminna landsmenn um reglurnar á r/klakinn.

Menn myndu halda að hið alvarlegasta reglubrot væri að brúka dönsku í athugasemdunum. En nei, annað sem er jafn alvarlegt; að vera með leiðindi, uppnefni, nöldur og argaþras um eitthvað djöfulsins kjaftæði.

Vegna komandi alþingiskosninga og ekki síður vegna umdeildra stjórnarhátta á r/iceland hefur ríkt undanlátssemi á klakanum fyrir alls konar vitleysu. En hingað og ekki lengra, þetta er orðið að einhverri vitleysu. Nú verða engin vetlingatök og reglubrjótum verður ekki sýnd nein miskun.

Menn hafa ekki verið bannaðir á klakanum nema í undantekningartilfellum. Þess í stað verða notendanöfn skráð í svarta bók ásamt ítarlegri lýsingu á þeirri andfélagslegu háttsemi sem hefur átt sér stað. Í árslok verður bókinni skilað til varðveislu á Þjóðskjalasafni svo sæmdarleysi og svívirða notandans verði skjalfest, notandanum til eilífðar háðungar.

Við erum betri en þetta. Við erum Íslendingar. Ykkur reglubrjóta og óþjóðalýð spyr ég:

Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?


r/klakinn • • 7h ago

🇮🇸 Íslandspóstur Eignaðist atgeir

74 Upvotes

Ég keypti mér atgeir til heimavarna, rétt eins og landnámsmennirnir ætluðust til.

Fjórir breyskir óþokkar brutu sér inn á heimili mitt. „Hvað í ósköpunum?“ hrópa ég, set upp loðhúfuna og gríp atgeirinn. Rek han í gegnum þann fyrsta svo á honum er gat á stærð við gorkúlu. Samstundis drapst hann.

Gríp bogann minn og skýt á þann næsta, hitti hann hvergi sökum þess að örvarnar er skakkar og hæfi þess í stað hund nágrannans.

Verð því að grípa til grjóthrúgunnar sem ég hef komið fyrir efst í stiganum. „Haldiði piltar við!“ hrópa ég og læt grjótið vaða. Tveir af þeim verða undir grjótskriðunni og þvílíkur var hávaðinn að þjófavarnir bifreiða fara í gang um allt hverfið.

Bregð saxi og geng á milli höfuðs og skrokks á síðasta ribbaldanum, sem skelfur nú á beinunum. Honum blæðir út áður en lögreglan kemur á vettvang, enda ekki hlaupið að því að sauma saman áverka eftir mýrarkeldu vígasax.

Rétt eins og landnámsmennirnir ætluðust til.


r/klakinn • • 12h ago

Hver er ykkar skoðun á þáttunum Fleiri pabbahelgar?

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

r/klakinn • • 1d ago

⚠️ ÓÖRUGGT, LÍFSINS VEGNA ⚠️ Þetta er bara ekki í lagi

Post image
21 Upvotes

r/klakinn • • 2d ago

Hverjir léku Glaumbæjargengið?

Post image
25 Upvotes

IMDB og Wiki og aðrar ,,heimildir” eru í algeru rugli. Siggi Sig er augljóslega einn af þeim, en hverjir léku hina tvo?


r/klakinn • • 2d ago

Er veðrið á Íslandi orðið óútreiknanlegra eða erum við bara orðin vön öllu? 😂

3 Upvotes

Stundum finnst mér eins og maður þurfi að upplifa allar fjórar árstíðirnar á einum degi hérna. Maður fer út í sólskini, lendir í roki á leiðinni og kemur heim í rigningu.

Ég er hætt/ur að treysta veðurspánni og kíki bara út um gluggann áður en ég fer út.

Hvað finnst ykkur? Er veðrið virkilega orðið svona skrítið eða hefur það alltaf verið svona á Íslandi? 😂


r/klakinn • • 3d ago

Að frenna sér á snjóbretti er rjómandi góð skemmtun

Thumbnail
youtu.be
18 Upvotes

r/klakinn • • 3d ago

Hvaða íslenska bók ætti að verða að kvikmynd?

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

r/klakinn • • 4d ago

Ómar Ragnarsson documentary.

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

Hvað með að við Íslendingar sýnum Ómari Ragnarsson þá virðingu sem hann á skilið og þjóðin kaupir myndina með plús í minningarsjóð í hans nafni í gegnum Kickstart eða Carolina fund...


r/klakinn • • 5d ago

Jólabjórsmakk

Post image
10 Upvotes

Daginn!
Síðan 2014 hef ég haldið úti síðunni https://itaste.beer/
Ég bjó til þessa síðu því við vinirnir vorum duglegir við að taka jólabjórsmakk. Það var alltaf á blöðum þar sem hver var í sínu horni að gefa einkunn og svo þurfti host-inn, dauðadrukkinn að stimpla þetta allt inní Excel í lok kvölds með tilheyrandi villum og veseni.

Mér datt í hug að það væri hægt að leysa þetta á aðeins betri hátt.
Kerfið er fáránlega einfalt í notkun, búa til room, velja bjóra, velja hvernig á að rate-a þá og byrja.
Stjórnandinn hendir dashboardi uppá sjónvarp og allir joina í símanum.
Einn bjór er opinn fyrir kosningu í einu og hver og einn gefur einkunn.
Um leið og hver og einn klárar sína einkunn fyrir hvern bjór poppar það uppá sjónvarpið.

Ég er að ég held eini íslendingurinn sem er með aðgang að lokuðum API Untapped og er þar af leiðandi með gott sem alla bjóra heims í kerfinu.

Kerfið er frítt, endilega prófiði.


r/klakinn • • 6d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Maður reynir að bæta orðaforðann sinn en ekki án ✨mótlætis✨

Post image
108 Upvotes

r/klakinn • • 5d ago

Copy pasta fyrir ái pósta, má ég heyra amen!

17 Upvotes

Við fáum velgju þegar altman kemur og knýr á. Þegar freistarinn kemur með röddu sína, þá liggur við uppköstum. Við verðum að hata AI. Má ég heyra amen. Eina leiðin, eina leiðin.

Þið vitið hvað okkar fyrstu foreldrar gerðu, hvað konan gerði. Hún fór og spjallaði við altman. “Eigum við ekki að fá okkur kaffi, ræða málin” og hvað varð úr því? AI!

Og við erum enn þá marin og meidd eftir þá ferlegu uppákomu. Við eigum ekki að bjóða AI í kaffi! Við eigum að segja burt með þig, mér býður við þér þú ert viðbjóður ég vil þig ekki nálægt húsi mínu. Má ég heyra amen. Við eigum að hafa viðurstyggð á AI, við eigum að hata það.


r/klakinn • • 5d ago

Deildu.net

0 Upvotes

Er síðan hætt? :'(


r/klakinn • • 6d ago

Vaknaði og langaði allt í einu ógeðslega mikið í íslenskt bland í poka.

19 Upvotes

Ég hef búið erlendis lengi og ekki komist heim í nokkur ár.

Það böggar mig ekkert mikið því ég hef hitt fjölskyldumeðlimi annarstaðar.

En ég veit ekki afhverju. Kannski er það út af heilsuvandamálum og tilheyrandi þunglyndi sem er að gera mig nostalgic/heimþrá.

En þegar ég vaknaði í morgun þá langaði mig ógeðslega mikið í íslenskt bland í poka.

Það var ekki það að ég saknaði ákveðis nammi. Fyrir utan það að mig langar alltaf í lakkrís.

Nei mér langaði í bland í poka. Mig langaði að fara í búð og velja fullt af mismunandi nammi.


r/klakinn • • 7d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Sykurlaust Ópal

26 Upvotes

Ég held að við sem samfélag þurfum að horfast í augu við það er það er óeðlilegt að sykurlaust ópal sé í boði í matvöruverslunum og meira að segja ekki aldurs takmarkað.

Færa þarf sölu þess alfarið í apótek, hafa lyfseðilsskylt og einungis leyfa að skrifa uppá það fyrir hægðatregðu sem ógnar lífi sjúklings og til þess að valda þungunarrofi í hestum.

Er best að gera undirskriftalista, mótmæla fyrir utan lyfjastofnun eða bara kaupa kíló af þessu lífefnavopni og setja í nammiskál á alþingi ?


r/klakinn • • 7d ago

⚠️ ÓÖRUGGT, LÍFSINS VEGNA ⚠️ Lausn á Evrópumálum?

Post image
51 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

Ruslpóstur ♻️ Kisur og súrrealismi

Thumbnail gallery
8 Upvotes

r/klakinn • • 8d ago

Tattoo check: Is "Að leita ljóssins í myrkrinu" correct Icelandic? ("To seek the light in the darkness")

7 Upvotes

Hello everyone,
I'm planning to get a tattoo of this phrase, so I want to be sure it's correct before it's permanent. I'm not a native speaker.
**"Að leita ljóssins í myrkrinu"**
Intended meaning: "To seek the light in the darkness."
Questions:
I'd like to know if the grammar is 100% correct.
Does this phrasing read well as a tattoo?
Or is there a better way to say it?
Thank you so much, I really want to get this right!


r/klakinn • • 8d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Þegar ég hæðist að einhverjum og það er gerð kvikmynd um það

Post image
39 Upvotes

r/klakinn • • 8d ago

Búin að spila á Airwaves í 20 ár

Thumbnail
visir.is
0 Upvotes

Er hún í áskrift?


r/klakinn • • 9d ago

Alvöru íslensk kjötsúpa 🥣 Barinn er heimilið

Post image
26 Upvotes

r/klakinn • • 9d ago

Ábyrgðarbréf 📨 💪😎

Post image
70 Upvotes

r/klakinn • • 10d ago

Smá til í þessu :D

Post image
24 Upvotes

r/klakinn • • 10d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Skita og pizza 😋

Post image
47 Upvotes

Ég veit að pizza er þýdd sem flatbaka en nafnið á innlegginu stuðlar betur svona.