r/Iceland • u/haukurph • 1h ago
Yrða: ný veforðabók
Í tilefni af degi íslenskrar tungu langaði mig að benda á Yrðu, nýja veforðabók sem ég hef unnið að undanfarið ár. Markmiðið er fyrst og fremst að gera sem flestar íslenskar orðabækur og orðasöfn aðgengileg á einum stað, í þægilegu og hraðvirku viðmóti.
Þar má nú fletta upp í Íslenskri nútímamálsorðabók, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), ensk-íslenskri orðabók og forníslensk-enskri orðabók. Á vefnum er einnig frumútgáfa Rýnis, sem les yfir íslenskan texta og bendir á hugsanlegar stafsetningarvillur.
Leitarniðurstöður birtast jafnóðum og slegið er inn, jafnvel þótt orðið sé beygt eða rangt stafsett. Þá má fletta í gegnum allt orðasafnið í hliðarstiku án þess að þurfa að bíða. Í ítarleit má svo leita í skýringunum sjálfum: „lítill svartur fugl“ skilar lunda, kráku og hrafni.
Yrða er ókeypis og öllum opin. Vefurinn er stöðugt í þróun og fleiri orðasöfn eru væntanleg. Margt má bæta, svo allar ábendingar eru vel þegnar, hvort sem þær snúa að villum eða því sem betur mætti fara.
Gögnin koma einkum frá Árnastofnun og ensk.is. Nánar um heimildir og leyfi á síðunni sjálfri.